Skilmálar

 

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Betrasport ehf, kt:460315-0260 til húsa að Austurkór 105, 203 Kópavogi.

Allar upplýsingar á vef okkar - www.Betrasport.is - , þmt. birgðastaða, verð osfrv. eru birt með fyrirvara um villur. Betra sport áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta afhendingartíma osfrv.

Afhending vöru

Öllum pöntunum á höfðuborgarsvæðinu er keyrt út og er afhendingartími 2-3 virkir dagar. Sendingar á landsbyggðina eru sendar með póstinum og þar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins.

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í sama ástandi og við kaup og í upprunalegum umbúðum.  Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og/eða viðgerð í samræmi við lög um neytendaábyrgð.

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. 

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem viðskiptavinur velur. 

Við sendum allar pantanir frítt heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu. Sendum einnig frítt út á land ef verslað er fyrir 20.000 krónur eða meira, en fyrir pantanir undir 20.000 krónum bætast við 1000 krónur í sendingarkostnað

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Notkun á persónuupplýsingum

Sendingar úr vildarkerfi okkar kunna að nota persónuupplýsingar á borð við búsetu, aldur eða viðskiptasögu (en þessi listi er ekki tæmandi), til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima klúbbsins. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir klúbbsins geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Varnarþing

Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.