Þessar eru ótrúlega hlýjar og þægilegar!!Þær henta frábærlega fyrir hlaupin og aðra útivist. Buxurnar eru fóðraðar með mjúku og þægilegu microfleece efni sem hentar á köldum haust og vetrardögum á Íslandi. Fóðrunarefnið andar vel og er teygjanlegt.
Buxurnar veita þéttan þrýsting og stuðning eða 18 mmHg við ökkla, 14 mmHg við kálfa og 10 mmHg við læri. Í buxunum er OEKO-TEX® efni. Stórir og góðir vasar og endurskin að framan og aftan.